Um GRÆNT
GRÆNT er íslenskt vörumerki sem á rætur sínar í Breiðargerði, lífrænni garðyrkjustöð í Skagafirði þar sem ræktun, vinnsla og nýsköpun fara saman.
Í Breiðargerði er ræktað fjölbreytt úrval grænmetis, kryddjurta og annarra nytjaplantna. Hluti uppskerunnar er seldur ferskur, en annað hráefni fær nýtt hlutverk undir merkjum GRÆNT.
Góð nýting uppskeru og hráefna vinnur gegn matarsóun og stuðlar að sjálfbærni. Þess vegna nýtir GRÆNT meðal annars grænmeti og aðrar afurðir sem eiga á hættu að fara til spillis, svo sem útlitsgallað grænmeti og afskurð. GRÆNT framleiðir handunnar sælkeravörur og leggur áherslu á að nýta innlend hráefni úr lífrænni ræktun. Vörurnar eru framleiddar í litlu magni, í takt við árstíðirnar, og vöruúrvalið tekur breytingum eftir því hvað ræktunin og íslensk náttúra gefa af sér.
GRÆNT byggir á grunnhugmyndafræði lífrænnar ræktunar. Að bera virðingu fyrir náttúrunni, jarðveginum og hráefninu. Vörumerkið varð til sem eðlilegt framhald af ræktuninni, leið til að sýðna uppskerunni þá virðingu að nýta hana eins vel og mögulegt er.
GRÆNT snýst um vandaðar vörur, gott hráefni og lífræna íslenska framleiðslu.