Vandaðar vörur í litlu upplagi

GRÆNT færir þér vandaðar matvörur framleiddar á Íslandi. Jurtir og grænmeti úr innlendri ræktun sameinast gæðahráefnum og lífrænni vottun í vandlega mótaðri bragðupplifun.

Unnið af alúð

Hugmyndin að vörumerkinu GRÆNT kviknaði út frá virðingu fyrir jörðinni og afurðum hennar. Stór hluti okkar hráefna er útlitsgallað grænmeti sem annars hefði farið til spillis. Þannig vinnum við gegn matarsóun.

Um GRÆNT

GRÆNT sameinar gæði, upplifun og virðingu fyrir náttúrunni. Lífræn vottun er í senn leiðarljós og loforð til neytenda.